blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

11.19.2004

Old bagles, best bagles in the world !

Enn og aftur helgi! Merkilegt hvað þetta líður! Eg er loks búin að ná mér eftir þetta stress allt saman og er komin á normal virkni aftur! Þetta gengur ekki að gera sér þetta. ég ætla að fara til læknis og ath hvort ég geti ekki fengið eitthvað róandi sem hægt er að taka rétt fyrir svona stress stuðla og plúbb.. vera bara lige glad! það hlýtur að vera til eitthvað "holt" lyf við þessu!!!!
Helgin framundan er að sjálfsögðu pakkfull af skemmtilegum hlutum og nóg að gera :) víí skemmtilegt :) Mín kæra beigla er að fara að gifta sig á morgun :) Ég hlakka ekkert smá til .. þetta verður æði :) ég var að hugsa um að gefa henni kökukefli með göddum en hef ekki fundið það. Veit að það er til.. hef séð svoleiðis... en það er ekki í boði hjá minninu að vita hvar!!! Þannig ég ætla að hux hux þetta í kvöld og finna eitthvað skemmtilegt á morgun.
Svo er það annað!! jólinn damn it!!! þau eru komin af stað í umræðunni hjá öllum!! ég nenni ekki jólunum núna! væri svo til í að fara á skíði til austurríkis í staðin, sleppa bara þessu veseni. Það er svo geðveikt að vera þar.. lyktin sem er í loftinu er ..mmmm .. þetta er paradís :) langarlangarlangar!!!! aaaahh verð að komast á skíði á næstunni!! ..En það er fátt sem jafnast á við dýrið á jólunum... henni finnst þetta svo æðislegt og skemmtilegt og spennandi... það er frábært! Þannig að sjálfsögðu gerir maður allt til þess að hún upplifi þetta sem best. Höfum tekið upp danska siði eftir dvölina þar þannig það er fullt að gera hjá okkur allan desember :) Byrjum á pakka-kalender 1 des með þema of course... sem minnir mig á að ég þarf að fara að huga að þvi!!! Mundu nú það gamla min.. þu mundir eftir þessu 19 nov!!! þegar þu ert að gera þetta allt aðfaranótt 1 des! hefðir geta verið löngu búin að þessu!!!!!
Beiglurnar fóru í ræktina í gær.. erum að reyna að losna við brakið sem er í öllum liðum, vorum hörkuduglegar enda erum við á amm held bara 4 viku í átakinu!! nnoohh það er rosa gott á okkar mælikvarða! Erum meira að segja búnar að setja upp fasta tíma núna og komnar með semí prógram :) Old bagles, best bagles in the world :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home